▣
Eitt stjórnborð
UniFi stjórnborðið gefur heildarsýn yfir allt netið — tæki, notendur, umferð og villur — í vafra eða appi, hvar sem þú ert.
〜
Þráðlausir aðgangspunktar
WiFi 6 og WiFi 7 aðgangspunktar með þráðlausu reiki (roaming) milli punkta. Við mælum húsnæðið og staðsetjum punktana rétt svo netið nái í hvern krók.
⌗
Switchar og PoE
Netskiptar (switchar) með PoE sem knýja aðgangspunkta í gegnum netlögnina sjálfa — færri snúrur, snyrtilegri tengiskápur.
◉
Gátt og öryggi
Cloud Gateway beinir með innbyggðum eldvegg, VLAN-uppskiptingu (t.d. gestanet og fyrirtækjanet aðskilin), VPN-aðgangi og netumferðarstýringu.